ALLIR þessir fjórir leikmenn æfðu og/eða spiluðu með strákum fram til ca. 15 ára aldurs, jafnvel þó þær væru komnar inn í akademíur eða MFL lið. Svissneska sambandið gerir líka vel í að grípa efnilegar stelpur eins og þessar með markvissri tæknilegri þjálfun og jafnvel skólavist
Hversu mörgum ungum leikmönnum treystir Pia Sundhage til að byrja í kvöld? Það er erfitt að segja en ég tel öruggt að Iman Beney spili. Hún var í liði ársins í svissnesku deildinni í vetur og var keypt til Manchester City nú á vordögum youtube.com/watch?v=OiwZico1…
Finnum hefur gengið ágætlega síðustu tvö ár. Komust á EM í gegnum umspil eftir að hafa endað neðstar íriðlinum. En þó vekja sigur á Ítalíu og jafntefli við Holland athygli. Fyrir viku spilaði Finnland við Holland og tapaði 2-0. Fyrra mark Hollands kom eftir mistök við eigin teig.
Veðbankar telja íslenska liðið líklegra til sigurs í dag. Ég held að Finnland muni stjórna leiknum en stóra spurningin er hvort Íslandi takist að ræna af þeim boltanum miðsvæðis og koma Sveindísi í hættulegar stöður. Ef það tekst ekki verður róðurinn þungur fyrir okkar konur🇮🇸🇫🇮
Ég geng óbundinn og óákveðinn til kosninga. Erfitt að segja hvaða einkunn xB fær fyrir málaflokk íþrótta síðustu árin, en sjónarmiðið sem hér er líst er afar mikilvægt.
visir.is/g/20242651048d/ithr…
Framkvæmdastjóri ÍSÍ reyndi í löngu máli að útskýra af hverju KSÍ fær ekki krónu úr afrekssjóði. Ekki mjög sannfærandi. Held að KSÍ byrji að fá styrki þegar leikmenn yngri landsliða þurfa að greiða fyrir keppnisferðir. Lélegt og kannski ólöglegt.