Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda. Tryggðu þér áskrift á brotkast.is/askrift

Joined June 2023
1,308 Photos and videos
Ekki gott að byggja heimsmynd sína á algóriþma samfélagsmiðlanna. Sjáðu viðtalið í heild sinni á brotkast.is - tryggðu þér áskrift.
1
1
18
3,372
„21 árs dóttir mín fékk túrbókrabbamein eftir bólusetningu“ – Hrafn krefst svara | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E33 Í þessu viðtali segir Hrafn Margeirsson frá erfiðustu reynslu lífs síns: missi 21 árs dóttur sinnar sem lést úr mjög ágengu ristilkrabbameini árið 2024. Hrafn er sannfærður um að veikindi dóttur sinnar tengist Covid-bólusetningum sem hún fékk árið 2021. Hann rekur þá atburðarás sem varð til þess að hann skipti um skoðun á bólusetningunum, segir frá leit sinni að svörum eftir andlát dótturinnar og gagnrýnir harðlega íslensk heilbrigðisyfirvöld, fjölmiðla og lyfjafyrirtæki. Meðal þess sem rætt er: • Saga 21 árs dóttur Hrafns og veikindi hennar • Hvað svokallað „túrbókrabbamein“ er að mati þeirra sem nota hugtakið • Aukaverkanir Covid-bólusetninga og skráningar þeirra • Umræða um sprautuskaða á Íslandi • Gagnrýni á heilbrigðisyfirvöld og fjölmiðla • Hvers vegna Hrafn telur að mikilvægar spurningar hafi ekki verið rannsakaðar. Athugið: Viðmælandinn lýsir hér eigin skoðunum, reynslu og túlkun á atburðum. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/ @FrostiLoga
3
21
645
Hvers vegna hertu Danir innflytjendareglur sínar? Var það vegna slæmrar reynslu eða tóku hægri öfgamenn bara völdin? Sjáðu allt viðtalið á Brotkast.is
3
21
4,760
Rannsókn frá 2017/18 sýndi engin tengsl milli fjölda innflytjenda frá múslimaríkjum og hryðjuverkaárása. Flestar árásir eiga sér stað í Miðausturlöndum vegna ófriðarástands, ekki vegna innflytjenda. Sjáðu þáttinn í heild sinni á brotkast.is, tryggðu þér áskrift!
6
6
5,017
Brotkast retweeted
Það verður heldur betur Bakslag á sunnudagskvöldið kl 20:00. Gestur þáttarins verður @evaateva Eva Þorsteinsdóttir , frambjóðandi Miðflokksins í Reykjavík og hörkutól. Það er heldur betur nóg að ræða, svo ekki missa af þessu! @Sverrirhelga95 @bjarnason_helgi @brotkasttv
3
22
3,599
Hvað segja rannsóknir um innflytjendur og afbrot? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E36 Hafa innflytjendur meiri tilhneigingu til að fremja afbrot? Hvað segja rannsóknir frá Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og Bandaríkjunum? Og hvers vegna virðast niðurstöður vera svo ólíkar milli landa? Í þessu viðtali ræðir Frosti Logason við Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði við Háskóla Íslands, sem var nýkomin af alþjóðlegri ráðstefnu í Stokkhólmi þar sem fjallað var um tengsl innflytjenda, samþættingar og afbrota. Meðal þess sem rætt er: • Staðan í Svíþjóð og vaxandi vandamál tengd glæpagengjum • Hvers vegna önnur kynslóð innflytjenda virðist standa verr en sú fyrsta í sumum löndum • Umdeild danska rannsóknin á palestínskum flóttamönnum og afkomendum þeirra • Munurinn á Evrópu og Bandaríkjunum þegar kemur að innflytjendum og afbrotum • Hlutverk menningar, félagslegra aðstæðna og velferðarkerfa • „Grooming gangs“ málin í Bretlandi og viðbrögð yfirvalda • Hvort ótti við ásakanir um kynþáttafordóma geti haft áhrif á rannsóknir og stefnumótun • Hvernig afbrotafræðingar nálgast viðkvæm mál sem snerta þjóðerni, uppruna og afbrot Margrét leggur áherslu á mikilvægi þess að skoða gögn, rannsóknir og samhengi frekar en að draga víðtækar ályktanir af einstökum málum eða fyrirsögnum. #Spjallið #FrostiLogason #MargrétValdimarsdóttir #Afbrotafræði #Innflytjendur #Svíþjóð #Danmörk #Bretland #Glæpagengi #Samþætting Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/ @FrostiLoga
1
5
400
Ísland þyrfti veikari krónu áður en evran yrði tekin upp | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E35 Konráð Guðjónsson hagfræðingur ræðir við Frosta Logason um mögulega upptöku evru á Íslandi og segir að staða Íslands sé ólík stöðu flestra ríkja sem hafa gengið inn í evrusvæðið. Í viðtalinu bendir hann á að Ísland sé nú þegar hluti af innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn og að því sé óvíst hversu mikill viðskiptaábatinn af upptöku evru yrði. Hann telur jafnframt að Ísland myndi líklega þurfa að ganga inn í evrusvæðið á mun veikara gengi en nú er og nefnir að það gæti numið 10–20%. Konráð veltir einnig upp áhrifum á laun, atvinnuleysi, kaupmátt, matvælaverð og lífsgæði á Íslandi. Hann segir að þrátt fyrir hátt verðlag standi Íslendingar mjög sterkt þegar horft er til ráðstöfunartekna, eignamyndunar og almennra lífsgæða. 📌 Helstu punktar: • Ísland er þegar á innri markaði ESB í gegnum EES • Takmarkaður viðskiptaávinningur af evru að mati Konráðs • Evran gæti krafist 10–20% veikari krónu • Hvað myndi það þýða fyrir laun og kaupmátt? • Atvinnuleysi og mögulegur samfélagslegur kostnaður • Eru lífsgæði Íslendinga í raun meðal þeirra bestu í heimi? #SpjalliðMeðFrosta #KonráðGuðjónsson #Evran #ESB #EES #Hagfræði #Ísland #Krónan #Kaupmáttur #Atvinnuleysi #Evrópusambandið Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/ @FrostiLoga @konradgudjons
3
20
1,691
Innflytjendamál ógni þjóðaröryggi | Harmageddon | S04E23 Jonathan Hall, óháður eftirlitsaðili með hryðjuverkalöggjöf í Bretlandi, segir stjórnvöld þurfa að ræða tengsl innflytjendamála og þjóðaröryggis af meiri hreinskilni. Hann varar við að fjandsamleg ríki geti nýtt sér ólöglega innflytjendur og að einstaklingar sem hafa upplifað stríð og áföll geti í sumum tilvikum skapað aukna öryggisáhættu. Ummælin koma í kjölfar hnífaárásar í Belfast sem valdið hefur samfélagslegri spennu og óeirðum. Hall segir að nauðsynlegt sé að viðurkenna að innflytjendamál geti haft áhrif á þjóðaröryggi án þess að það jafngildi andstöðu við innflytjendur eða mannúðarsjónarmið. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/ @FrostiLoga
1
2
6
289
Kaufmann: Ráðuneytið bannaði mér að greiða laun starfsmanna Vélfags | Spjallið með Frosta | S04E34 Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, segir að íslensk stjórnvöld hafi komið í veg fyrir að hann gæti greitt laun starfsmanna fyrirtækisins úr eigin vasa þegar rekstur þess var kominn í verulegan vanda vegna viðskiptaþvingana. Vélfag, sem hafði starfað á Akureyri í rúmlega þrjá áratugi, varð fyrir miklu áfalli eftir að fyrirtækið lenti í viðskiptaþvingunum vegna meintra tengsla Kaufmanns við rússneska hagsmuni. Kaufmann hafnar þeim ásökunum alfarið. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/ @FrostiLoga
1
11
513
Ivan Kaufmann: Þorgerður Katrín sagði að ég ætti að selja Vélfag Íslendingi | Spjallið | S04E34 Ivan Kaufmann hefur verið sakaður um að vera „leppur Rússa“ af íslenskum stjórnvöldum. Í þessu ítarlega viðtali við Frosta Logason segir Kaufmann sína hlið á Vélfagsmálinu í fyrsta sinn af fullum þunga. Kaufmann heldur því fram að íslensk stjórnvöld hafi aldrei sýnt honum nein gögn sem réttlættu aðgerðirnar gegn honum, þrátt fyrir að hann hafi lagt fram umfangsmikil gögn um eignarhald sitt og viðskiptasögu. Í viðtalinu fullyrðir hann að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi látið þau skilaboð berast til hans að hann ætti að selja Vélfag til íslensks aðila. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/ @FrostiLoga
1
5
31
3,520
Tæknifyrirtækið Vélfag á Akureyri var keyrt í þrot vegna gruns um tengingar við rússneskan skuggaflota.
2
2
26
4,004
Þorgerður Katrín: Af hverju vill hún leiða Ísland inn í ESB? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E33 Í þessu ítarlega viðtali sest Frosti Logason niður með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að ræða eitt stærsta pólitíska álitaefni samtímans: mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þau fara yfir: • Hvort ríkisstjórnin hafi nægilegt umboð til að hefja ESB-vegferðina • Af hverju Þorgerður telur samningsstöðu Íslands sterkari nú en áður • Áhrif Donald Trump, Grænlandsmálsins og breyttrar heimsmyndar á stefnu Íslands • EES-samninginn og hvort hann dugi til framtíðar • Varnir, NATO og samskipti Íslands við Bandaríkin og Evrópu • Krónuna, evruna, vexti og verðbólgu • Ríkisfjármál, veiðigjöld og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar • Hvað þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst raunverulega um Viðtalið er hreinskilið, gagnrýnið og fer víða um þau mál sem helst brenna á Íslendingum í umræðunni um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Hvað finnst þér? Ætti Ísland að halda áfram viðræðum við ESB eða ekki? Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/ @FrostiLoga
3
120
Útilokun Miðflokksins stefna frá Valhöll | Harmageddon | S04E22 Sjálfstæðisflokkurinn telur að leiðin upp úr sögulegu fylgishruni sé að ráðast gegn Miðflokki og mála hann upp sem óstjórntækan öfgaflokk. Þannig telur flokkurinn sig geta endurheimt stöðu sína sem fjöldahreifing skynsamra hægri manna. Einnig ræðum við í þessum þætti um skynsama stefnu NoBorders samtakanna um að íslenskt velferðarkerfi eigi að bjóða öll velkomin, rekstur Icelandair sem er ekki samkeppnishæfur með dýrustu laun í heimi og uppgjöf framhaldsskóla við að reyna kenna ungu fólki íslenskar heimsbókmenntir. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/ @FrostiLoga
3
23
756
Ragnar Erling Hermannsson segir að hinsegin samfélagið hafi brugðist hommum. Sjáðu þáttinn hjá Fullorðins á Brotkast.is
2
180
Segir að Heiða Björg hafi útrýmt heimilisleysi í Reykjavík | Fullorðins | S03E16 Ragnar Erling Hermannsson hefur barist fyrir málefnum heimilislausra í nokkur ár og hefur háð baráttu við fíkniefnadjöfulinn. Hann segir okkur sína sögu í þættinum í dag. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
6
995
Ingibjörg Birna Ársælsdóttir missti báða foreldra sína úr krabbameini, þegar hún var sjálf bara táningur. Sjáðu þáttinn í heild sinni á brotkast.is, tryggðu þér áskrift.
2
195
Missti báða foreldra sína með stuttu millibili skömmu eftir fermingu | Fullorðins | S03E15 Ingibjörg Birna Ársælsdóttir missti báða foreldra sína úr krabbameini, þegar hún var sjálf bara táningur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá því hvernig hún komst í gegnum árin á eftir og hvað hún gerði til að búa sér til fallegt og farsælt líf. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/
1
105
Sjálfstæðisflokkurinn ekki hægriflokkur | Harmageddon | S04E21 Kjósendur Sjálfstæðflokksins vakna nú upp við þann veruleika að þeir hafa kosið enn eina vinstristjórnina í Reykjavík. Flokkurinn virtist vera ná sér eftir erfitt gengi undanfarið en nú þarf kraftaverk að gerast í Reykjavík til að kjósendur muni treysta flokknum aftur á næstu árum. Jafnvel grjótharðir, innmúraðir Sjálfstæðismenn þurfa nú að fara horfast í augu við þá staðreynd að forysta flokksins vill miklu frekar geta skálað í hvítvíni með RÚV fólkinu, sem hún þráir viðurkenningu frá, heldur en að halda á lofti einhverjum hægri áherslum í pólitík. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift/ @FrostiLoga
1
6
58
1,542
Brotkast retweeted
Spilling þegar þú ert kominn með ríkisstjórn ofan á ríkisstjórnina þína. Þáttur #37 : Frosti Sigurjónsson Spotify: open.spotify.com/episode/0WV… Youtube: youtube.com/watch?v=JEpEe5AA… @Sverrirhelga95 @bjarnason_helgi @NordicMasc @brotkasttv
2
7
316