Kári Kristjánsson hefur verið seldur tilbaka í Þrótt Reykjavík. FH og Þróttur komust að samkomulagi um kaupverð í dag. Við óskum Kára góðs gengis í Laugardalnum.
"Kári kom að máli við okkur fyrir ekki svo löngu síðan og lýsti yfir vilja að fara aftur heim. Þróttarar voru tilbúnir að borga uppsett verð fyrir hann og í framhaldinu ákváðum við að leyfa leikmanninum að fara. Í þeirri uppbyggingu sem við erum í er mikilvægt að leikmennirnir okkar séu tilbúnir að leggja allt í verkefnið og þegar sú er ekki raunin þá er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið." Davíð Þór Viðarsson