Stórar breytingar eru að eiga sér stað víða um hinn vestræna heim, þar á meðal á Íslandi.
Samfélagsmódelið sem mótaðist eftir stríð er að bresta. Að fara í skóla, kaupa húsnæði og gera „allt rétt“ skilar ungu fólki sífellt minni árangri.
Í fyrsta sinn í langan tíma blasir við að heilar kynslóðir muni hafa það verra en foreldrar sínir.
Ungt og vinnandi fólk er sífellt meira skattlagt, á sama tíma og skattarnir skila sér minna í raunveruleg uppbyggingarverkefni sem bæta stöðu þeirra.
Þetta ýtir undir að fólk gefts upp á kerfinu og leit að lausnum, sérstaklega meðal ungra karla.
Flestir stjórnmálaflokkar hafa hins vegar ekki tekið þennan stækkandi hóp alvarlega. Uppgangur Miðflokksins og sambærilegra flokka erlendis er því óhjákvæmilegur meðan aðrir flokkar sofa á verðinum.