Það er gleðiefni að tilkynna að Dominic Ankers hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna. Dom, sem er 29 ára gamall Englendingur, kom til Gróttu sumarið 2021 og hefur síðan þá verið aðstoðarþjálfari í báðum meistaraflokkunum og þjálfað 2. og 5. fl. kk. Spennandi tímar! 🙌🏽