Rosalegur dagur á Malbygg í Skútuvogi í dag. Húsið opnar kl 15, 10 jólabjórar á krana. Matur í boði. Ég þeyti svo skífum 19:30-23:00. Þetta verður hauslaust dæmi
Eftir mikinn fjölda áskorana, símtöl og bréfaskriftir, fjall tölvupósta, höfum við ákveðið að svara kallinu og settum upp FÚSBAL á okkar litla en huggulega bar. Njótið!
Það vita það kannski ekki margir en við bjóðum upp á skemmtilega brugghúsatúra og smakkanir handa hópum, stórum sem smáum. Eins og myndin sýnir erum við með æðislegt program. Getur sent okkur línu á Malbygg@Malbygg.is
Erum mættir alla leið til Kaupmannahafnar á ÅBEN KALAS bjórhátíðina. Hér er er gaman að vera og við hvetjum alla vini okkar til að stoppa við hjá ÅBEN og fá sér frábært öl ef þið eigið leið um Kaupmannahöfn!
Kæru vinir. Ég er tilkynningu á vegum Malbygg vaktarinnar:
"Í kvöld mun Malbygg taka yfir alla krana á Skúla.
Við munum frumsýna 2 nýja bjóra frá þeim. Þar erum við að tala um brakandi ferskan Kölsch og svo Oreo Kaffi Imperial Stout! Einnig verður sérútgáfa af Sumarsopa"
Veisla
Sex ára afmæli Malbygg á morgun! Byrjum klukkan 16:00 í HQ Skútuvogi 1H
100 fyrstu bjórglösin í okkar boði BÆNG frír grillmatur BÆNG Afmælisbjór BÆNG Karaoki BÆNG! Afmæliskaka BÆNG!